23/06/2026by Dögg Matthíasdóttir

UNESCO kynnir nýjan leiðarvísi fyrir fjölskyldur á  stafrænni öld

Fyrir flest börn og ungmenni í dag er stafræni heimurinn órjúfanlegur hluti af daglegu lífi. Nám, vinátta
og upplýsingaleit fara í auknum mæli fram á netinu, samhliða því sem áhyggjur af öryggi barna og
ungmenna í stafrænu umhverfi aukast. Þótt stafrænt umhverfi bjóði upp á fjölmörg tækifæri til náms,
samskipta og þekkingarleitar fylgja því einnig áskoranir, svo sem neteinelti, skaðlegt efni, rangar
upplýsingar og hatursorðræða.

Af þessu tilefni kynnti UNESCO nýjan leiðarvísi, Growing Up in a Connected World: A Family Guide for the
Digital Age (Að alast upp í sítengdum heimi: Leiðarvísir fyrir fjölskyldur á stafrænni öld), sem er ætlaður
foreldrum, fjölskyldum og umönnunaraðilum.

Leiðarvísirinn miðar að því að efla miðla- og upplýsingalæsi fjölskyldna svo þær geti stutt börn og
ungmenni í öruggri, gagnrýninni og ábyrgri þátttöku í stafrænum heimi.

Hlekkur á leiðarvísinn: Að alast upp í sítengdum heimi: Leiðarvísir fyrir fjölskyldur á stafrænni öld.pdf