24/02/2026by Dogg

Endurnýjun samnings um Vigdísarstofnun sem UNESCO-stofnun

Sofiya Zahova, forstöðumaður Vigdísarstofnunar, með Khaled El-Enany, aðalframkvæmdastjóra UNESCO.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskóli Íslands og UNESCO hafa endurnýjað samning sín á milli þess efnis að Vigdísarstofnun – Alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar starfi áfram sem UNESCO-stofnun í flokki 2. Samningurinn er gerður til átta ára og gildir til ársins 2033. Vigdísarstofnun mun styðja alþjóðlegt starf UNESCO til að tryggja að tungumál haldi áfram að dafna á tímum stafrænnar tækni og að samfélög, einkum á norðurslóðum og á Norðurlöndum, geti varðveitt og miðlað tungumálaarfi sínum til komandi kynslóða.

„Endurnýjað umboð Vigdísarstofnunar sem UNESCO stofnun í flokki 2 rennir styrkum stoðum undir sameiginlega skuldbindingu okkar um að rækta, virða og styðja við tungumál með rannsóknum, menntun og máltækni. Sem tæknivædd og fróðleiksfús þjóð, er Ísland stolt af því að leggja sitt af mörkum til alþjóðlegs samstarfs sem tryggir að tungumál haldi áfram að vaxa, dafna og vera lifandi hluti af menningu í stafrænum heimi,“

segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

Stofnanir í flokki 2 eru sjálfstæðar stofnanir starfræktar undir merkjum UNESCO. Þær vinna í nánu samstarfi við UNESCO og leggja sitt af mörkum til áætlana og forgangsverkefna hennar, um leið og þær miðla sérfræðiþekkingu, rannsóknum og svæðisbundinni þekkingu til að vekja máls á alþjóðlegum áskorunum. Endurnýjun samningsins gerir Vigdísarstofnun kleift að gegna lykilhlutverki í að efla fjöltyngi, styðja við rannsóknir á tungumálum í útrýmingarhættu og minnihlutamálum og þróa nýsköpunarverkefni til að viðhalda fjölbreytni tungumála og menningar.

„Fjöltyngi er kjarninn í starfi UNESCO við að styðja inngildandi og þekkingarmiðuð samfélög. Endurnýjunin styrkir sameiginlega skuldbindingu okkar um að vernda fjölbreytni tungumála, efla samtal á milli menningarheima og tryggja að öll tungumál, sérstaklega þau sem eru í útrýmingarhættu, geti dafnað í stafrænum heimi,“

segir Dr. Tawfik Jelassi, aðstoðarforstjóri á sviði samskipta- og upplýsingamiðlunar, UNESCO.

Í tilefni af endurnýjun samningsins átti Sofiya Zahova, forstöðumaður Vigdísarstofnunar, fund með dr. Khaled El-Enany, aðalframkvæmdastjóra UNESCO, þar sem rætt var um samstarfið. Þau ítrekuðu sameiginlega skuldbindingu um að styðja við tungumálafjölbreytni, fjöltyngi og þvermenningarlegt samtal á tímum þegar friður og samtal eru mikilvægari en nokkru sinni.