29/04/2026by Dögg Matthíasdóttir

UNESCO dagurinn 7. maí 2026

Velkomin á UNESCO-daginn í Eddu 7. maí.

Vilt þú fræðast um sundlaugamenningu á Íslandi og einstaka stöðu hennar á heimsvísu? Hefur þú áhuga á UNESCO heimsminjastöðum, jarðvöngum og vistvangi á Íslandi eða vilt kynnast því hvernig íslensk menningararfleifð og menntamál tengjast starfi UNESCO?

Á UNESCO-deginum í Eddu fimmtudaginn 7. maí kl. 13:00–16:30 verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem m.a. verður fjallað um þessi UNESCO-svæði hér á landi, tungumálatækni og framtíð fámennra tungumála í stafrænni framtíð, skráningar á lista UNESCO um Minni heimsins og starf Reykjavíkur sem
bókmenntaborgar UNESCO. Einnig verður varpað ljósi á verkefni sem tengjast ungmennum og menntun í UNESCO-skólum á Íslandi og GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu sem starfar undir merkjum UNESCO og starfrækir fjóra skóla á sviðum sem skiptu höfuðmáli í þróun Íslands til velsældar.

UNESCO- dagurinn 2026
Edda | Fimmtudaginn 7. maí | 13 – 16:30

Dagskrá

13:00 Íslenska UNESCO- nefndin. Sæunn Stefánsdóttir, formaður landsnefndar UNESCO

13:05 Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar.
Sofiya Zahova, forstöðumaður Vigdísarstofnunar

13:15 Tungumálatækni fyrir okkur öll: Eiga fámennismál sér vísan stað í stafrænni framtíð? Guilherme Canela, forstöðumaður sviðs stafrænna málefna og stefnumótunar hjá UNESCO 

13:45   Ávarp ráðherra. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra

13:55 Konungsbók eddukvæða og Reykholtsmáldagi – skráning á landsskrá Íslands og tilnefning á heimskrá UNESCO um Minni heimsins. Haukur Þorgeirsson, Árnastofnun og Benedikt Eyþórsson, Þjóðskjalasafni

14:15 Reykjanes jarðvangur – næsta kynslóð og jarðvangurinn. Daníel Einarsson, verkefnastjóri Reykjanes jarðvangs

14:25 Katla jarðvangur. Jóhannes M. Jóhannesson, framkvæmdastjóri Kötlu jarðvangs

14:30 Heimsminjastaðir á Íslandi: Þingvellir, Surtsey og Vatnajökulsþjóðgarður – einstakir á heimsvísu. Einar Á.E. Sæmundsen, Þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, Helga Árnadóttir og Ragnheiður Björk Sigurðardóttir, Náttúruverndarstofnun

14:45 Kaffihlé

15:10 Íslensk sundlaugamenning og lifandi hefðir. Harpa Þórsdóttir, Þjóðminjavörður.

15:20 Snæfellsnes fyrsti UNESCO vistvangurinn á Íslandi. Ragnhildur Sigurðardóttir, þjóðgarðsvörður Snæfellsjökulsþjóðgarðs og Hlédís Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri vistvangsins

15:30 UNESCO -skólar á Íslandi. Pétur Hjörvar Þorkelsson, verkefnastjóri hjá Félagi Sameinuðu þjóðanna á Íslandi

15:40 Ungmenni og UNESCO – hverjar eru áherslurnar? Arna Dís Heiðarsdóttir, fulltrúi ungmenna í Íslensku UNESCO-nefndinni

15:50 Reykjavík bókmenntaborg UNESCO. Kjartan Már Ómarsson, verkefnastjóri bókmenntaborgar

16:00 GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu – Jafnréttisskólinn, Landgræðsluskólinn, Sjávarútvegsskólinn og Jarðhitaskólinn. Nína Björk Jónsdóttir, forstöðumaður GRÓ

16:20 Íslenska Vatnafræðinefndin. Jórunn Harðardóttir, rannsóknastjóri hjá Veðurstofu Íslands


Kaffi í dagskrárlok
Fundarstjóri er Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir, aðalritari landsnefndar