Í tilefni þess að íslensk sundlaugamenning var í desember síðastliðnum skráð á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns auglýstu Þjóðminjasafn Íslands og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið eftir umsóknum um styrki til menningarviðburða í sundlaugum landsins. Fjölmörg áhugaverð verkefni hlutu styrk og eru nú að raungerast víða um land – sjá yfirlit yfir alla viðburði hér.
Á Snæfellsnesi verður meðal annars boðið upp á Kvöldsundstundir, þar sem sundlaugarnar á Snæfellsnesi verða vettvangur samveru, menningar og upplifana. Miðvikudaginn nk. frá kl. 20:00–22:00 verður Kvöldsundstund í sundlaug Ólafsvíkur og fimmtudaginn frá kl. 20:00–22:00 í Lýsulaugum. Það er Svæðisgarðurinn Snæfellsnesi sem skipuleggur viðburðina með það að markmiði að skapa notalega samveru fyrir íbúa, fjölskyldur og gesti á þessum einstöku samfélagsstöðum sem sundlaugarnar eru.„Sundlaugarnar eru dýrmætir innviðir þar sem fólk kemur saman, hreyfir sig, slakar á og á samtöl. Við hvetjum íbúa, nágranna og gesti til að mæta og njóta kvöldsins með okkur,“ segir Hlédís Sveinsdóttir hjá Svæðisgarðinum Snæfellsnesi.
Baðaðu þig í náttúrulegum „búbblum“
Lýsulaug er einstök á landsvísu þar sem hún er fyllt heitu ölkelduvatni sem kemur beint úr jörðinni. Vatnið er steinefnaríkt og hefur um árabil verið talið hafa bæði holl og endurnærandi áhrif. Engum efnum, svo sem klóri eða öðrum hreinsiefnum, er bætt í vatnið, sem gerir baðupplifunina sérstaka og ólíka því sem flestir þekkja úr hefðbundnum sundlaugum.
Veitingar og upplifanir úr nærumhverfinu
Boðið verður upp á hressandi drykk úr héraði sem samanstendur af náttúrulegu ölkelduvatni beint úr jörðu, rabarbarasírópi frá Katí á Hofstöðum og ætum blómum frá Ræktunarstöðinni Lágafelli. Æt blóm geta verið bæði sæt, súr og pipruð og gefa drykknum sérstakan karakter að sögn Hlédísar. „Gestir geta einnig notið andlitsskrúbbs, andlitsmaska og andlitsolíu frá Alexöndru hjá La Bruceria á Þórdísarstöðum, sem framleiðir handgerðar vörur úr jurtum og öðrum náttúrulegum hráefnum.“ Tónlist verður einnig í fyrirrúmi. Hljómsveitin Bæring í öðru veldi leikur fyrir gesti í Ólafsvík, en Ægir Már sér um tónlistarflutning í Lýsulaugum. Þar verður jafnframt boðið upp á sögustund með Ragnhildi, þjóðgarðsverði í Snæfellsjökulsþjóðgarði.
Tvöföld UNESCO gleði
Árið 2025 hlaut Ísland tvær mikilvægar UNESCO-viðurkenningar sem endurspegla einstakt samband náttúru, menningar og samfélags. Annars vegar var íslensk sundlaugamenning skráð á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns og hins vegar varð Snæfellsnes fyrsti UNESCO-vistvangur Íslands.Báðar viðurkenningarnar byggja á sömu grunnhugsun: að sjálfbær samfélög verða til þegar fólk nýtur náttúrunnar, verndar hana og skapar um leið lifandi menningu og sterk samfélagstengsl. Sundlaugin er tákn um samfélagið sem náttúran hefur gert mögulegt. Vistvangur UNESCO á Snæfellsnesi er hins vegar tákn um hvernig samfélagið tekur ábyrgð á þeirri náttúru sem það byggir afkomu sína á.
Frekari upplýsingar um viðburði í Sundlaugarsumrinu 2026 – Viðburðir: Sundlaugasumar 2026 | Þjóðminjasafn Íslands
