Velkomin á UNESCO-daginn í Eddu 7. maí nk.
Vilt þú fræðast um sundlaugamenningu á Íslandi og einstaka stöðu hennar á heimsvísu? Hefur þú áhuga
á UNESCO heimsminjastöðum, jarðvöngum og vistvangi á Íslandi eða vilt kynnast því hvernig íslensk
menningararfleifð og menntamál tengjast starfi UNESCO?
Á UNESCO-deginum í Eddu fimmtudaginn 7. maí kl. 13:00–16:30 verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá
þar sem m.a. verður fjallað um þessi UNESCO-svæði hér á landi, tungumálatækni og framtíð fámennra
tungumála í stafrænni framtíð, skráningar á lista UNESCO um Minni heimsins og starf Reykjavíkur sem
bókmenntaborgar UNESCO. Einnig verður varpað ljósi á verkefni sem tengjast ungmennum og menntun í
UNESCO-skólum á Íslandi og GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu sem starfar undir merkjum
UNESCO og starfrækir fjóra skóla á sviðum sem skiptu höfuðmáli í þróun Íslands til velsældar.
UNESCO- dagurinn 2026
Edda | Fimmtudaginn 7. maí | 13 – 16:30
Dagskrá
13:00 Íslenska UNESCO- nefndin. Sæunn Stefánsdóttir, formaður landsnefndar UNESCO
13:05 Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar.
Sofiya Zahova, forstöðumaður Vigdísarstofnunar
13:15 Tungumálatækni fyrir okkur öll: Eiga fámennismál sér vísan stað í stafrænni
framtíð? Guilherme Canela, forstöðumaður sviðs stafrænna málefna og
stefnumótunar hjá UNESCO
13:45 Ávarp ráðherra. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
13:55 Konungsbók eddukvæða og Reykholtsmáldagi – skráning á landsskrá Íslands
og tilnefning á heimskrá UNESCO um Minni heimsins. Haukur Þorgeirsson,
Árnastofnun og Benedikt Eyþórsson, Þjóðskjalasafni
14:15 Reykjanes jarðvangur – næsta kynslóð og jarðvangurinn. Daníel Einarsson,
verkefnastjóri Reykjanes jarðvangs
14:25 Katla jarðvangur. Jóhannes M. Jóhannesson, verkefnastjóri Kötlu jarðvangs
14:30 Heimsminjastaðir á Íslandi: Þingvellir, Surtsey og Vatnajökulsþjóðgarður –
einstakir á heimsvísu. Einar Á.E. Sæmundsen, Þjóðgarðsvörður á Þingvöllum,
Helga Árnadóttir og Ragnheiður Björk Sigurðardóttir, Náttúruverndarstofnun
14:45 Kaffihlé
15:10 Íslensk sundlaugamenning og lifandi hefðir. Harpa Þórsdóttir, Þjóðminjavörður.
15:20 Snæfellsnes fyrsti UNESCO vistvangurinn á Íslandi. Ragnhildur Sigurðardóttir,
þjóðgarðsvörður Snæfellsjökulsþjóðgarðs og Hlédís Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri
vistvangsins
15:30 UNESCO -skólar á Íslandi. Pétur Hjörvar Þorkelsson, verkefnastjóri hjá Félagi
Sameinuðu þjóðanna á Íslandi
15:40 Ungmenni og UNESCO – hverjar eru áherslurnar? Arna Dís Heiðarsdóttir, fulltrúi
ungmenna í Íslensku UNESCO-nefndinni
15:50 Reykjavík bókmenntaborg UNESCO. Kjartan Már Ómarsson, verkefnastjóri
bókmenntaborgar
16:00 GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu – Jafnréttisskólinn,
Landgræðsluskólinn, Sjávarútvegsskólinn og Jarðhitaskólinn. Nína Björk
Jónsdóttir, forstöðumaður GRÓ
Kaffi í dagskrárlok
Fundarstjóri er Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir, aðalritari landsnefndar