Alþjóðlegi Jazzdagurinn

UNESCO Alþjóðlegi Jazzdagurinn

Í tilefni af Alþjóðlega Jazzdeginum þann 30. apríl n.k. stendur Íslenska UNESCO-nefndin í samstarfi við Tónlistarskóla FÍH fyrir viðburði í Hörpu kl. 17 – 18.30 undir yfirskriftinni

Hvað er jazz? Einnig verða þennan dag jazz-tónleikar á Jómfrúnni, Kex og Café Rosenberg.

Fræðumst, fögnum og fjölmennum eru kjörorð UNESCO fyrir Alþjóðlega Jazzdaginn og verður deginum fagnað í 24 klukkustundir samfleytt um heim allan með fjölbreyttum viðburðum allt frá Beirút til Peking og Dakar til Reykjavíkur.

„Á Alþjóðlega jazzdeginum taka jarðarbúar höndum saman í friði og sátt og deila ástríðu sinni fyrir tónlist í nafni frelsis og sköpunargleði“ segir Irina Bokova Aðalframkvæmdastjóri UNESCO. Þess vegna stóð UNESCO fyrir því að fagna Alþjóðlega Jazzdeginum í fyrsta sinn árið 2012, þá í samstarfi við Velvildarsendiherrann og djasssnillinginn Herbie Hancock. Alþjóðlegi Jazzdagurinn er hátíð draumsins um heim þar sem fólk nýtur hvarvetna friðar og frelsis.

„Allir eru hjartanlega velkomnir!“ eru skilaboðin frá UNESCO og í ár tökum við Íslendingar virkan þátt í þessum degi.