27/09/2025by Dogg

Snæfellsnes er fyrsti UNESCO vistvangur Íslands

Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) staðfesti í dag umsókn Íslands um að gera Snæfellsnes að vistvangi. Er þetta fyrsta svæðið á Íslandi sem hlýtur þessa alþjóðlegu viðurkenningu.

Hugtakið vistvangur er íslenskun á hugtakinu Biosphere Reserve, en þau svæði eru viðurkennd af MAB-áætlun UNESCO, en MAB stendur fyrir Man and Biosphere, maður og lífheimurinn. Vistvangur er svæði sem vinnur með náttúru- og félagsvísindi og nýtir þau sem grunn til að bæta lífsgæði íbúa, varðveita vistkerfi og stuðla að sjálfbærri þróun.

Það var að frumkvæði sveitarfélaganna á Snæfellsnesi sem vinna við umsókn um vistvang UNESCO hófst árið 2020 í umboði íslenskra stjórnvalda. Undirbúningsvinna við gerð umsóknarinnar stóð sem hæst sumarið 2024 þegar stýrihópur skipaður af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skilaði í september sama ár inn umsókn en ráðuneytið veitti verkefninu einnig fjárstuðning.

Menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytið fór fyrir umsókninni þar sem ráðuneytið fer með öll málefni UNESCO á Íslandi. Vistvangurinn á Snæfellsnesi bætist nú í UNESCO-fjölskylduna á Íslandi en lesa má nánar um verkefnin á https://unesco.is/unesco-a-islandi/

Svörtuloft á Snæfellsnesi


Ísland nú hluti af alþjóðlegu neti vistvanga

„Með tilnefningunni er varpað ljósi á áralangt frumkvöðlastarf Snæfellinga í umhverfis- og samfélagsmálum, sem og þau nýju tækifæri sem samfélaginu bjóðast nú gegnum alþjóðlegt samstarf af þessari stærðargráðu. Viðurkenningin sem í tilnefningunni felst markar eitt stærsta skrefið í þeirri vegferð sem sveitarfélög, stofnanir, atvinnulíf og félagasamtök á Snæfellsnesi hafa staðið saman að í a.m.k. þrjá áratugi – vegferð sem byggir á samvinnu um sjálfbærni, vernd og nýtingu náttúruauðlinda í sátt við samfélagið. Það er heiður að fá tækifæri til að vera fyrirmynd annarra svæða, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi,”

segir Björg Ágústsdóttir, formaður stjórnar Svæðisgarðsins Snæfellsness.

Alþjóðlegt net vistvanga í heiminum nær til 759 svæða í 136 löndum, þar af 25 sem liggja á milli landa. Þessi svæði ná yfir meira en 5% af yfirborði jarðar og þar búa yfir 300 milljón manns. Vistvanga er að finna á öllum hinum Norðurlöndunum og eru flestir þeirra í Svíþjóð.

„Aðild að vistvangs verkefni UNESCO er viðurkenning fyrir Ísland í heild og eflir bæði ímynd og aðdráttarafl Íslands og Snæfellsness. Með tilkomu vistvangs er opnað á leiðir til að nýta reynslu og þekkingu annarra vistvanga víða um heim þar sem sjálfbærni, nýsköpun og samfélagsuppbygging fara saman. Verkefnið er afurð farsællar samvinnu allra aðila sem að því stóðu og eflir enn frekar tengsl þjóðgarðsins við nærsvæðin,“

segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra tekur í sama streng.

„Þessi viðurkenning gefur fræðslu, rannsóknum og nýsköpun á sviði auðlindanýtingar og byggðaþróunar byr undir báða vængi. Við höfum séð dæmi um að tilnefning sem þessi hafi verulega aukið rannsóknir og eflt vísindastarf innan svæðisins svo sem í Nordhordland í Noregi, en slík vinna er undirstaða framfara.“

Snæfellsjökulsþjóðgarður og Svæðisgarður Snæfellsness

Snæfellsjökulsþjóðgarður er kjarnasvæði í vistvangi Snæfellsness og er þjóðgarðurinn og Svæðisgarður Snæfellsness samstarfsaðilar í verkefninu. Þjóðgarðurinn var stofnaður árið 2001 og nær yfir Snæfellsjökul og nærsvæði umhverfis hann. Verndargildi svæðisins felst einkum í landslagi, vistkerfum og menningarminjum.

Svæðisgarðurinn Snæfellsnes nær yfir Snæfellsnesið í heild og er samstarfsverkefni sveitarfélaganna fjögurra, íbúa, stofnana og fyrirtækja á svæðinu.

Svæðisgarðurinn er byggðaþróunarlíkan sem vinnur að því að efla byggðafestu, sjálfbærni og svæðisbundna þróun, og styður þannig við sjálfbæra ferðaþjónustu, nýsköpun og atvinnuþróun. Í þeirri vinnu er lögð áhersla á að grunnur verðmætasköpunar og ímyndar byggi á náttúru- og menningararfi svæðisins.