Samskipti og fjölmiðlar

Ísland leggur áherslu á:

  •  Tjáningarfrelsi og fjölbreytta miðlun upplýsinga
  • Öryggi fjölmiðlafólks

UNESCO hefur sérstakt umboð til að efla frelsi hugmynda í orði og myndmiðlun og starfar að því að tryggja tjáningarfrelsi og fjölbreytileika fjölmiðla – þ.m.t. prentmiðla, ljósvakamiðla og netmiðla.

UNESCO vinnur þannig m.a. að eflingu tjáningarfrelsis og öryggi fjölmiðlafólks og leitast við að tryggja lýðræði og gagnsæi, en það starf tengist beint Heimsmarkmiðum SÞ, einkum markmiði 4 um menntun, markmiði 10 um aukinn jöfnuð og markmiði 17 sem varðar samvinnu um framkvæmd Heimsmarkmiðanna.

UNESCO hefur lagt áherslu á að við lifum á tímum byltingar í upplýsingatækni, þar sem aðgengi að upplýsingum hefur aldrei verið greiðara og meira, en um leið er sífellt flóknara að greina kjarnann frá hisminu í öllu upplýsingastreyminu, þar sem jafnauðvelt er að dreifa röngum staðreyndum og réttum.

Fjölmiðlar

UNESCO hefur staðið að fjölda verkefna og viðburða og gefið út fræðsluefni til að efla fjölmiðlalæsi og menntun fjölmiðlafólks. Sérstök fjölmiðlaverkefni sem styðja við tjáningarfrelsi og fjölbreytta fjölmiðlun geta fengið styrki frá svonefndri Alþjóðlegri áætlun um þróun samskipta (​International Programme for the Development of Communication ​ , IPDC), sem einnig styrkir menntun fjölmiðlafólks.

Í stjórn IPDC sitja 39 aðildarríki UNESCO og hefur framkvæmdastjóri UNESCO allt frá árinu 2008  annð hvert ár skilað til stjórnarinnar skýrslu um öryggi fjölmiðlafólks og hættu á refsileysi þeirra sem ráðast gegn fjölmiðlafólki.

Einn af stærstu viðburðum UNESCO á hverju ári er Alþjóðadagur fjölmiðlafrelsis (​World Press Freedom Day) sem haldinn er 3. maí en flest aðildarlönd UNESCO minnast dagsins með einum eða öðrum hætti.

Tilmæli UNESCO á sviði samskipta og fjölmiðla

Tilmæli UNESCO eru alþjóðlegar leiðbeiningar sem samþykktar eru af æðsta stjórnvaldi stofnunarinnar til að hafa áhrif á lög og venjur aðildarríkjanna. Þau krefjast ekki formlegrar fullgildingar en fela í sér skýra alþjóðlega stefnumörkun sem ríki skuldbinda sig siðferðilega til að fylgja.

Á sviði samskipta og fjölmiðla tryggja tilmælin að tjáningarfrelsi, upplýsingaréttur og stafrænn jöfnuður séu virtir. Þau leggja áherslu á opinn og jafnan aðgang að áreiðanlegri þekkingu, verndun og skráningu á stafrænum og skriflegum heimildaarfi mannkyns, og eflingu tungumálafjölbreytni í stafrænum miðlum.

Tjáningarfrelsi og öryggi blaðamanna undir vaxandi þrýstingi

Skýrsla UNESCO, World Trends in Freedom of Expression and Media Development, veitir heildstæða innsýn í stöðu fjölmiðla, tjáningarfrelsis og öryggis blaðamanna á heimsvísu. Niðurstöður sýna að grundvallarréttindi til frjálsrar upplýsingamiðlunar og gagnrýninnar umræðu eiga víða undir högg að sækja.

Niðurstöðurnar sýna að aukin ritskoðun valdhafa, útbreiðsla upplýsingaóreiðu og vaxandi ógnir við öryggi blaðamanna grafa undan lýðræðislegu aðhaldi. Þótt ný tækni bjóði upp á tækifæri til alþjóðlegs samstarfs hefur tíðni árása, stafræns áreitis og sjálfsritskoðunar aukist verulega á undanförnum árum.

Óháð og fagleg blaðamennska er hornsteinn lýðræðislegra samfélaga og forsenda þess að almenningur geti veitt valdhöfum nauðsynlegt aðhald.

Áratugur frumbyggjatungumála 2022-2032

UNESCO vinnur að því að vernda fjölbreytni tungumála heimsins og efla fjöltyngi sem grundvöll menningarlegrar fjölbreytni, menntunar og þátttöku í samfélaginu. Áhersla er lögð á að tungumál séu lifandi farvegur þekkingar, menningar og sjálfsmyndar og að fólk geti lært, tjáð sig og nálgast upplýsingar á eigin tungumáli, einnig í stafrænum heimi. Starfið felur meðal annars í sér stuðning við móðurmálskennslu og fjöltyngda menntun, varðveislu tungumála í hættu og eflingu tungumála á netinu. UNESCO leiðir jafnframt framkvæmd Alþjóðlegs áratugar frumbyggjatungumála 2022–2032, sem miðar að varðveislu, endurlífgun og eflingu þeirra.

Viltu vita meira?

Skoðaðu: Alla málaflokka 

Scroll to Top