Ísland leggur áherslu á:
- Menningarlega fjölbreytni og varðveislu tungumála heimsins
- Verndun og miðlun menningararfs
UNESCO leggur áherslu á að engin þróun geti verið sjálfbær án sterkrar menningar og því mikilvægt að Heimsmarkmið SÞ séu höfð að leiðarljósi í stefnumótun á sviði menningarmála. Til að efla og tryggja stöðu menningar hefur UNESCO samþykkt þríþætta nálgun: að vera leiðandi á heimsvísu og tala fyrir áherslu á menningu og þróun, jafnframt því að taka þátt í alþjóðasamfélaginu með þeim hætti að setja skýrar stefnur og lagaramma á sviði menningarmála og vinna um leið markvisst að því að styðja stjórnvöld og hagsmunaaðila til að vernda menningararfleifð heimsins, styrkja skapandi atvinnugreinar og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni.
Lifandi hefðir og heimsminjaskrá
Einn af hornsteinunum í menningu heimsbyggðarinnar eru tungumálin og sú menningarlega fjölbreytni sem þeim tengist. UNESCO hefur löngum unnið að því að standa vörð um stöðu tungumála heimsins og lagt áherslu á varðveislu og fjölbreytileika þeirra.
Menningarsamningar UNESCO eru vel þekktir á heimsvísu og bjóða upp á einstakan vettvang fyrir alþjóðlegt samstarf. Á grundvelli samninganna hefur orðið til heildrænt kerfi á sviði menningar sem er byggt á mannréttindum og sameiginlegum gildum. Markmiðið með samningunum er að leitast við að vernda og standa vörð um menningar- og náttúruarfleifð heimsins, þar á meðal fornminjar, lifandi hefðir, söfn, munnlegar hefðir, menningarminjar neðansjávar og aðrar tegundir menningararfleifðar.
Samningar UNESCO snúa einnig að því að styrkja sköpunarkraft og stuðla að nýsköpun og öflugu starfsumhverfi skapandi greina. Á heimsminjaskrá UNESCO (World Cultural and Natural Heritage) er að finna fjölmarga staði sem teljast til menningar- eða náttúruarfs heimsins, auk staða sem spanna hvort tveggja, þar sem menningarminjar eru í meirihluta. Þá geymir skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf heimsins (Intangible Cultural Heritage) dæmi um lifandi hefðir, siði og handverk frá samfélögum um allan heim.
Menningarsamningar
Helstu samningar UNESCO á sviði menningarmála:
- Samningur um að vernda og styðja við fjölbreytileg menningarleg tjáningarform (2005)
- Samningur um varðveislu menningarerfða (2003)
- Samningur um verndun menningararfs neðansjávar (2001)
- Samningur um verndun menningar- og náttúruarfleifðar heimsins (1972)
- Samningur um höfundarétt (1952, 1971)
- Samningur um leiðir til að hindra ólöglegan inn- og útflutning menningarverðmæta (1970)
- Haagarsamningurinn um vernd menningarverðmæta í vopnuðum átökum (1954)
Auk ofangreindra samninga hefur UNESCO gert ýmsa aðra samninga og samþykkt fjölda tilmæla á sviði menningarmála.
Tilmæli UNESCO á sviði menningar
Tilmæli UNESCO eru alþjóðleg viðmið og leiðbeiningar sem samþykkt eru af allsherjarþingi samtakanna til að samræma stefnumótun aðildarríkja. Þau eru ekki lagalega bindandi með hefðbundnum hætti, en fela í sér alþjóðlega viðurkenningu á grundvallargildum sem ríki eru hvött til að innleiða í eigin stjórnsýslu.
Í menningarmálum þjóna tilmælin mikilvægu hlutverki við að vernda og efla menningararf, skilgreina félagslega og faglega stöðu listamanna og tryggja rétt allra samfélagshópa til virkrar þátttöku í menningarlífi. Þau veita jafnframt leiðsögn um starfsemi safna og varðveislu sögulegs umhverfis í samhengi við nútímaþróun.
Sjá nánar: Tilmæli UNESCO á sviði menningar
Viltu vita meira?
Skoðaðu: Alla málaflokka
