Ísland leggur áherslu á:
- Að tryggja öllum jafnan aðgang að góðri menntun
- Framkvæmd Heimsmarkmiðs 4 um menntun, og forystu UNESCO á því sviði
Menntun er ein af meginstoðum starfs UNESCO og lykill að friði, mannréttindum og sjálfbærri þróun. UNESCO lítur á menntun sem grundvallarmannréttindi og vinnur að því að öll njóti jafns aðgangs að góðri menntun alla ævi. Starfið nær frá leikskólastigi til háskólanáms og tekur einnig til starfsmenntunar, fullorðinsfræðslu og símenntunar. UNESCO leiðir alþjóðlegt samstarf um fjórða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, sem snýst um að tryggja öllum jafnan aðgang að góðri menntun og stuðla að tækifærum til náms alla ævi.
Í starfi UNESCO á sviði menntamála er lögð áhersla á jöfn tækifæri, inngildingu og jafnrétti kynjanna, auk þess að efla kennara og styrkja menntakerfi. Menntun á að veita fólki þekkingu, færni og gildi til að taka virkan þátt í samfélaginu og takast á við sameiginlegar áskoranir. Þar skipa menntun til sjálfbærni, friðar, mannréttinda og hnattrænnar borgaravitundar mikilvægan sess. UNESCO vinnur jafnframt að því að stafræn tækni og gervigreind nýtist í þágu menntunar með réttindi og þarfir nemenda og kennara að leiðarljósi.
Samningar og tilmæli UNESCO á sviði menntunar
Mikilvægur þáttur í þessu starfi er mótun alþjóðlegra samninga og tilmæla (standard-setting instruments), sem leggja grunn að sameiginlegum viðmiðum í menntamálum. Samningar eru bindandi fyrir ríki sem gerast aðilar að þeim, en tilmæli veita leiðsögn um stefnumótun og framkvæmd án þess að vera lagalega bindandi. Meðal helstu samninga og tilmæla eru:
- Samningurinn gegn mismunun í menntun (1960): Grundvallarsamningur um réttinn til menntunar, bann við mismunun og jöfn tækifæri til náms.
- Samningar og tilmæli um viðurkenningu náms og prófgráða: Alþjóðasamningurinn um viðurkenningu prófgráða á háskólastigi (2019), Lissabon-samningur UNESCO og Evrópuráðsins (1997) og tilmæli um viðurkenningu náms og prófgráða á háskólastigi (1993). Þau styðja við sanngjarna viðurkenningu menntunar og hreyfanleika milli landa.
- Tilmæli um stöðu kennara (1966) og kennara á háskólastigi (1997): Viðmið um menntun, starfsumhverfi, faglegt sjálfstæði og réttindi kennara.
- Samningur um tækni- og starfsmenntun (1989) og tilmæli um tækni- og starfsmenntun og þjálfun (2015): Áhersla á gæði, aðgengi og færniþróun í tengslum við atvinnulíf og samfélag.
- Tilmæli um nám og menntun fullorðinna (2015): Áhersla á nám alla ævi, læsi, færni og virka samfélagsþátttöku.
- Tilmæli um opin menntagögn (2019): Stuðla að aðgengi að náms- og kennsluefni sem má nýta, aðlaga og miðla áfram samkvæmt opnum leyfum.
- Tilmæli um menntun til friðar, mannréttinda og sjálfbærrar þróunar (2023): Heildstæð leiðsögn um menntun sem eflir meðal annars alþjóðlegan skilning, samstarf, grundvallarfrelsi og hnattræna borgaravitund. Þau eru endurskoðuð útgáfa tilmæla UNESCO frá 1974.
Sjá nánar: Samninga á sviði menntunar og tilmæli UNESCO á sviði menntunar
Samstarfsáætlanir um menntun
UNESCO starfrækir einnig 19 samstarfsáætlanir á sviði menntunar, m.a. um menntun og jafnrétti, læsi, heilbrigði og velferð, upplýsingatækni og menntun, stefnumótun á sviði menntunar, menntun til sjálfbærni og heimsborgaravitundar og menntun og færni á sviði tækni- og starfsmenntunar, svo nokkrar þeirra séu nefndar.
UNESCO hefur sett á fót þrjú samstarfsnet á sviði menntunar og er net UNESCO-skóla (Associated Schools Network) hið umfangsmesta þeirra en UNESCO -skólar á Íslandi eru hluti af því.
Á vegum UNESCO starfar öflugt samstarfsnet háskóla um allan heim (UNITWIN network) og einnig hafa háskólaprófessorar um heim allan hlotið UNESCO-viðurkenningu (UNESCO Chairs). UNESCO veitir árlega nokkur verðlaun af ýmsum toga á sviði menntunar og rekur einnig 18 sérhæfð verkefni á sviði menntunar, t.d. Malala-menntasjóðinn til styrktar stúlkum.
Menntun innflytjenda og flóttamanna er eitt af forgangsatriðum UNESCO en önnur slík eru m.a. lýðræðismenntun og heimsborgaravitund (e. global citizenship) og læsi í víðum skilningi. CapED-menntasjóðurinn var stofnsettur árið 2003 og var Ísland meðal stofnaðila hans. Sjóðurinn hefur styrkt verkefni í 40 löndum með áherslu á þróunarlönd og lönd í viðkvæmri stöðu. Sjóðurinn vinnur samkvæmt Heimsmarkmiði 4 um menntun og er sérstök áhersla lögð á jafnrétti og að efla menntun stúlkna og kvenna.
UNESCO tengist sérhæfðum þekkingar- og menntamiðstöðvum víða um heim sem starfa undir verndarvæng stofnunarinnar (Category 2 Centres). Sem dæmi um slíkar miðstöðvar má nefna:
- Alþjóðamiðstöðina í Búrkína Fasó: Leggur megináherslu á menntun stúlkna og kvenna í Afríku.
GRÓ á Íslandi: Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu sem byggir upp færni sérfræðinga frá þróunarlöndum í gegnum fjóra skóla (á sviði jafnréttis, jarðhita, landgræðslu og sjávarútvegs).
- Vigdísarstofnun á Íslandi: Alþjóðleg miðstöð um fjöltyngi og menningarlegan skilning, sem styður m.a. við tungumálakennslu og verndun tungumála.
Menntastofnanir
Á menntasviði UNESCO eru eftirtaldar stofnanir:
- UNESCO International Bureau of Education (IBE)
- UNESCO International Institute for Educational Planning (IIEP)
- UNESCO Institute for Lifelong Learning (UIL)
- UNESCO Institute for Information Technologies in Education (IITE)
- UNESCO International Institute for Capacity-Building in Africa (IICBA)
- UNESCO International Institute for Higher Education in Latin America and the Caribbean (IESALC)
- Mahatma Gandhi Institute of Education for Peace and Sustainable Development (MGIEP)
Viltu vita meira?
Skoðaðu: Alla málaflokka
