Landsskrá Íslands um Minni heimsins

Minni heimsins - Landsskrá Íslands

Áætlunin Minni heimsins (Memory of the World) var stofnuð af UNESCO árið 1992 og starfar á grundvelli alþjóðlegra viðmiða stofnunarinnar um verndun skjala- og heimildaarfs. Formleg skráning á Landsskrá Íslands hófst árið 2015 á vegum Landsnefndar Íslands um Minni heimsins. Markmið skrárinnar er að varpa ljósi á fágætar íslenskar heimildir, handrit og skjalasöfn sem hafa afgerandi sögulegt gildi fyrir þjóðina og tryggja varðveislu þeirra til framtíðar.

Reykholtsmáldagi (Tilnefning 2026)

Reykholtsmáldagi er skinnskjal og elsta skjal sem ritað er á íslensku sem varðveitt er í frumriti. Máldaginn er jafnframt eitt elsta skjal sem ritað er á norræna tungu. Þá er Reykholtsmáldagi elsta skjal sem varðveitt er í Þjóðskjalasafni Íslands og hefur verið varðveittur í safninu frá stofnun þess árið 1882.

Elsti hluti máldagans er ritaður á síðari hluta 12. aldar og má færa rök fyrir því að hann sé upphaflega ritaður nær miðri öldinni en aldamótunum 1200. Á máldaganum má greina sjö rithendur og í ríflega öld hefur upplýsingum um eignir Reykholtskirkju verið bætt við hann. Tiltölulega fá skjöl eru varðveitt í frumriti frá 12. öld og fyrri hluta 13. aldar á Íslandi. Stærstur hluti þeirra texta sem rekja má til tímabilsins eru aðeins varðveittir í yngri afskriftum. Sú staðreynd ein og sér gerir Reykholts­máldaga einstakan í sinni röð.

Reykholtsmáldagi er skrá yfir eignir, ítök og réttindi Reykholtskirkju í Borgarfirði. Hann varpar skýru ljósi á þróun staðarins í Reykholti og hvernig vegur hans jókst jafnt og þétt eftir því sem leið á Sturlungaöld. Samhliða er Reykholtsmáldagi einnig mikilvæg heimild um þróun skriftar og stafsetningar á ritunartíma sínum. Skjalið hefur enn lagalega og sögulega þýðingu en var notað sem réttarheimild í máli fyrir Hæstarétti árið 2021, í máli nr. 41/2020 þar sem deilt var um hvort landsvæði í Borgarfirði teldist vera þjóðlenda eða væri í einkaeigu.

Varðveislusaga Reykholtsmáldaga er einstök. Skjalið hefur alltaf verið varðveitt á Íslandi, fyrir utan að hafa tvisvar verið lánað til Kaupmannahafnar. Það var ekki flutt úr landi eins og urðu örlög margra annarra skjala og handrita á 17., 18. og 19. öld. Líklega hefur skjalið verið varðveitt í Reykholtskirkju frá upphafi. Þess er fyrst getið árið 1562 í tylftardómi á Öxarárþingi þegar það var lagt fram í ágreiningsmáli milli umboðsmanna Reykholtskirkju og Kirkjubólskirkju í Langadal um eignarhald á tveimur jörðum á Ströndum. Reykholtsmáldagi barst svo Landsskjalasafni (Þjóðskjalasafni) við stofnun þess árið 1882 með öðrum skjölum Reykholtskirkju.

Sjá nánar: Reykholtsmáldagi- tilnefning.pdf

Íslensk túnakort 1916-1929 - Þjóðskjalasafn Íslands

Tún á Íslandi voru mæld og gerðir af þeim uppdrættir á árunum 1916-1929 á grundvelli sérstakra laga frá 1915. Kortin sýna nákvæmlega stærð túna, matjurtagarða og afstöðu bygginga og annarra mannvirkja. Þau eru því einstæð heimild um búsetulandslag, staðfræði og skipulagsmál hér á landi í upphafi 20. aldar. Túnakort geyma staðfræðilegar upplýsingar um drjúgan hluta fornleifa á Íslandi og er helsta heimild við skráningu þeirra. Þau sýna legu bæja og útihúsa sem flest eru horfin af sjónarsviðinu. Túnakortin sýna þannig staðsetningu heimila landsmanna um 1920 og geta flestir Íslendingar tengt sig við kortin með einum eða öðrum hætti. Uppdrættirnir eru um 5100 að tölu og sýna tún um 6300 heimila. Þorri kortanna er svarthvítur en í sumum hreppum voru þau gerð í lit. Stærð flestra kortanna er á bilinu A 3 til A 2

Konungsbók eddukvæða - Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

Handritið sem um ræðir er elsta og merkasta safn eddukvæða sem varðveist hefur.

Það var sent Danakonungi að gjöf á 17. öld og hlaut þess vegna nafnið Codex regius, þ.e. konungsbók. Þar eru felld saman í heild kvæði af norrænum goðum og hetjum þjóðflutningaaldar og víkingaaldar. Mest af þessum kvæðaarfi er hvergi til nema í þessu handriti og yngri eftirritum þess. Eddukvæði teljast til frumheimilda um trúarbragðasögu norrænna þjóða. Þessi arfur hefur varðveist sem leifar eða endurskapaður í nýjum búningi á þýsku og engilsaxnesku menningarsvæði en hvergi eins fjölbreyttur og með eins fornlegu sniði og á Íslandi.

Kvikfjártalið 1703 - Þjóðskjalasafn Íslands

Sambærileg frumheimild á borð við Kvikfjártalið 1703 mun vera vandfundin hjá öðrum þjóðum. Tilurð þess á rætur að rekja til viðamikillar rannsóknar danskra stjórnvalda á högum Íslendinga í upphafi 18. aldar. Kvikfjártal Árna Magnússonar og Páls Vídalín er ein af þremur megin frumheimildum, íslenskum, um efnahagslegar, félagslegar og atvinnulegar aðstæður á Íslandi á árabilinu 1702-1714. Hinar heimildirnar eru annars vegar Jarðabók þeirra Árna og Páls og þá Manntalið 1703. Saman veita þessar þrjár heimildir einstæða möguleika til rannsókna á íslensku samfélagi í upphafi 18. aldar. 

Til þessa hafa fræðimenn lítið notað Kvikfjártalið 1703, enda hefur það ekki verið gefið út á prenti, líkt og Jarðabókin og Manntalið 1703. Kvikfjáreigendur eru nefndir með nafni og getið um búsetu þeirra. Þannig fæst samanburður við Manntalið 1703. Dæmi eru um að jörð sé farin í eyði á tímabilinu frá manntalsdögum og fram að kvikfjártalningu, sem fór fram um tveimur mánuðum síðar. Ný vitneskja um eignarhald á skepnum kemur fram með því að tíunduð er kvikfjáreign vinnufólks. Þá eru glögg dæmi um hvernig kvikfé var leigt og sett í fóður með ýmsum hætti og þannig má rekja einsök dæmi um eignir og efnahagsleg samskipti eigenda og leiguliða.

Passíusálmar Hallgríms Péturssonar, eiginhandarrit

Passíusálmar Hallgríms Péturssonar komu fyrst út árið 1666 og hafa verið gefnir út yfir 90 sinnum, síðast árið 2015, oftar en nokkuð annað íslenskt verk. Þá hafa þeir einnig verið þýddir á mörg tungumál. Sálmarnir hafa notið mikilla vinsælda meðal þjóðarinnar í tæp 350 ár, bæði á opinberum vettvangi og til persónulegrar íhugunar. 

Aðeins eru varðveitt tvö handrit með hendi Hallgríms Péturssonar: Passíusálmarnir, sem varðveitt er í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni (JS 337 4to), og skýringar við vísur í Ólafs sögu Tryggvasonar í British Library (BL Add 11.193). Þá má geta að handritið hefur verið í fórum Hallgríms Péturssonar, Ragnheiðar Brynjólfsdóttur, Jóns Sigurðssonar og fleiri þekktra einstaklinga Íslandssögunnar.

Viltu vita meira?

Scroll to Top